Hvernig auðkennir fólk sig?
Öll tilheyrum við mörgum hlutverkum í lífinu og alltaf erum við í einhverju hlutverki. Þessi hlutverk eru eins ólík og þau eru mörg og geta þau bæði verið ásköpuð eða áunnin. Hlutverkin skipta okkur misjafnlega miklu máli. Við röðum hlutverkum okkar í ákveðna röð eftir því hversu mikilvæg þau eru fyrir okkur. Þetta gerum við bæði meðvitað og ómeðvitað. Það er meðal annars með þessari röð sem við myndum sjálfsmynd okkar. En þessi röð þjónar líka öðru mikilvægu hlutverki. Með henni stjórnum við því hvernig annað fólk, sem við höfum samskipti við, sér og upplifir okkur. Með þessari röð auðkennum við okkur.
Sjálf stjórnum við af miklu leiti hvað er mikilvægt í lífi okkar. Hvort það er til dæmis foreldrahlutverkið, kynið, húðliturinn, trúin, kynhneigðin eða starfsframi okkar. Líf okkar stjórnast að vissu leiti út frá röðinni vegna þess að mikilvægasta hlutverkið er gjarnan það hlutverk sem hefur mest áhrif á líf okkar og stjórnar því þar af leiðandi.
Það eru ekki til neinar leiðbeiningar um það hvernig á að meta mikilvægi mismunandi hlutverka og í hvað röð þau skulu vera. Þetta er huglægt mat sem byggir á verðleikamati hvers og eins. Ég get því ekki talað fyrir hönd allra kvenna, fatlaðra eða samkynhneigðra, né sagt hvað sé rétt eða rangt. Ég ætla því bara að fjalla um mitt sjálfsálit og færa rök fyrir því.
Í dag er ég... kona, sundkona, femínisti, lesbía og fötluð... Í þessari röð.
Það er að segja, svona lít ég á sjálfa mig. Ég lít fyrst og fremst á mig sem konu. Kona er áskapað hlutverk og þetta hlutverk skiptir mig miklu máli. Allt mitt líf stjórnast af því að ég er kona, meðvitað og ómeðvitað. Ég klæði mig eins og raun ber vitni af því ég er kona, ég sit með lappirnar í kloss af því ég er kona og mín lífsýn mótast af því að ég er kona. Svo segist ég vera sundkona og það hlutverk er vissulega áunnið. En í dag stjórnast líf mitt mikið af þessari íþróttaiðkun minni. Ég þarf að skipuleggja allt mitt líf í kringum mína íþróttaiðkun. Næst í röðinni er að ég er femínisti. Það að ég sé femínisti er ekkert rosalega stórt hlutverk í mínu lífi í dag, en verður það kannski síðar. Það hefur áhrif á hugmyndir mínar og viðhorf. Ég hef ákveðna femíníska sýn á lífið en líf mitt hvorki stjórnast né snýst um það að ég sé femínisti. Því næst er ég lesbía. Ég upplifi það hlutverk eitthvað sem ,,er bara”.... Ég er bara samkynhneigð og það skiptir ekki miklu máli, ég er það bara. Það hefur ekki meiriháttar áhrif á mitt líf að ég sé lesbía. Auðvitað hefur það áhrif á hluta af mínu lífi en ekki mikið þegar á heildina er litið. Síðast í röðinni er fötlunin. Ég er fötluð, það er meðfætt og ég fæ því ekki breytt. Ég upplifi mig ekki sem rosalega hreyfihamlaða manneskju sem getur nánast ekkert, þó svo að ég sé mest hreyfihamlaða sundkona á Íslandi. Fötlunin er ekki mikilvægasta hlutverkið í mínu lífi og hún stýrir því ekki alfarið.
Hægt er að skýra þetta á annan hátt.
Ég mundi aldrei labba upp að manneskju og segja ,,sæl, ég heiti Embla og ég er fötluð”.
Ég mundi mögulega, undir ákveðnum kringumstæðum, labba upp að manneskju og segja ,,sæl, ég heiti Embla og ég er lesbía”. Það er samt ólíklegt.
Ég get alveg hugsað mér að labba upp að manneskju og segja ,,sæl, ég heiti Embla og ég er femínisti”. Ég held ég hafi meira að segja gert það nokkru sinnum.
Ég hef OFT labbað upp að manneskju og sagt ,,sæl, ég heiti Embla og ég er sundkona”.
Ég get reyndar ekki sagt að ég hafi oft labbað upp að manneskju og sagt ,,sæl, ég heiti Embla og ég er kona”. Kannski bara af því við gerum það yfirleitt ekki og kynið leynir sér svo sem ekki.
Enga að síður gefur þetta dæmi ákveðna mynd af því sem ég er að útskýra. Ég er að tala um auðkenni. Þessi röð mín gæti í raun verið allavega og hún er auðvitað ekki föst svona. Hún breytist samhliða mínu gildismati og mun eflaust breytast mikið á meðan ég lifi. Ég verð til dæmis ekki alltaf sundkona. Röðin endurspeglar því gildismat okkar hér og nú. Ekki í gær, eða á morgun, heldur einmitt núna.
Ég sagði að hlutverkin hefðu mis mikla þýðingu fyrir okkur. Sem dæmi má nefna tvær konur, sem báðar eru svartar lesbíur. Önnur þeirra upplifir sig mikið sem svarta konu. Það hlutverk er mikilvægt fyrir hana og hennar líf stjórnast af því. Hin konan upplifir sig aftur á móti mikið sem lesbíu. Það að hún sé lesbía skiptir hana miklu máli og líf hennar stjórnast af hennar kynhneigð. Samt sem áður er sú síðarnefnda ekkert endilega ,,minna” svört, né ,,meira” samkynhneigð en hin. Þær upplifa þessi hlutverk á misjafnan hátt.
Sumir hafa fötlunina fremst í röðinni. Þeir upplifa sig rosalega fatlaða og haga sér þá líka í takt við það, alveg óháð t.d. hreyfigetu. Ég ætla að taka dæmi um tvær fatlaðar manneskjur sem ég þekki. Þær hafa mjög ólíka hreyfihömlun. Önnur þeirra er með fremur litla hreyfihömlun og getur hún talað, gengið, skrifað og klætt sig en notar hjólastól til lengri ferða. Hin manneskjan er spastísk og hefur ekki stjórn á neinum útlim né er fær um að tala. Það eina sem hún hefur stjórn á eru augun.
Fyrri manneskjan upplifir sig rosalega fatlaða og er án efa með fötlunina fremst í röðinni. Þessi manneskja er mjög ósjálfstæð og það er margt sem hún gerir ekki einfaldlega af því hún er fötluð, hlutir sem hún líkamlega ræður vel við. Þessi manneskja auðkennir sig með fötluninni og hennar hugarástand er fatlað. Hin manneskjan upplifir sig ekki rosalega fatlaða og hún leyfir fötluninni ekki að taka yfir í lífinu, fötlunin er eflaust ekki efst í hennar röð. Þessi manneskja gerir allt sem hana langar til og hennar hugarástand er ekki fatlað, heldur er það hugarástand ungrar manneskju sem hefur drauma og nýtur lífsins.
Ég get vissulega ekki fullyrt eitt né neitt út frá þessu eina dæmi, en þetta er veruleiki sem ég horfi upp á hvern einasta dag. Ég sé fólk með mikla hæfileika og getu ,,fatla” sjálft sig ótrúlega mikið. Það lítur fyrst og fremst á sig sem fatlaða manneskju og gleymir því að það getur verið eitthvað miklu meira og miklu stærra en fötlun, sem húkir í hjólastól allan daginn og horfir á lífið líða hjá.
Auðkennið mitt er ekki fötlun. Vissulega er ég fötluð kona, en ég er líka svo margt margt annað og stærra!
- Embla Ágústsdóttir




