Samfélag og fötlun

engin vorkunsemi í því

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Leifur Leifsson

E-mail Prenta

Leifur

Leifur Leifsson Fæddist þann 22. september árið 1984. Leifur stundaði grunnskólanám við Hlíðarskóla.


Sumarið 2004 gerði Leifur heimildarmynd í samstarfi við Evrópusambandið sem bar heitið Öryrkinn ósigrandi. Myndin fjallaði um fatlað fólk í hjólastól og hvað fatlað fólk getur gert þrátt fyrir fötlun sína, sem er oft á tíðum það sama og ófatlaðir geta gert ef viljinn er fyrir hendi.

 

Í myndinni var reynt að gera hluti sem fatlað fólk gerir yfirleitt ekki, eins og að farið á mótorhjól, river rafting. Leifur var fyrsti maðurinn í hjólastól til að fara upp á Esjuna, en hann naut þar aðstoðar ófatlaðra einstaklinga.

Sumarið 2005 var heimildarmyndin tilnefnd til verðlauna hjá ESB í flokki “Youth in Action” verkefna.

Eftir það starfaði Leifur svo við verkefnið “Götuhernaðurinn” en það verkefni byggðist að mestu leyti á því að halda úti heimasíðu. Á heimasíðunni eru hýstar stuttmyndir þar sem staðalímyndum samfélagsins var snúið á hvolf með húmorinn að vopni.

Meðfram þessu lauk Leifur svo stúdentsprófi á félagsfræðibraut í Borgarholtsskóla árið 2006.

Leifur er einnig meðlimur í svokallaðir hjólastólasveit en sú sveit samanstendur af fjórum aðilum sem hver um sig flytur uppistand við ýmis tækifæri.

Nú starfar Leifur hjá Þjónustumiðstöð Vesturbæjar við ýmis tilfallandi störf. Leifur er felagi í Junior Chamber International (JCI), Inc., sem eru alþjóðleg samtök ungra leiðtoga og frumkvöðla á aldrinum 18 – 40 ára. Einnig hefur Leifur haldið fyrirlestra um fordóma og staðalímyndir og hefur einnig unnið nokkuð í forvarnarstarfi meðal annars fyrir Rauða krossinn.

 

Velja útlit