
Aðalbjörg Gunnarsdóttir fæddist þann 31. janúar 1984. Aðalbjörg stundaði grunnsókanám við Hliðarskóla og lauk námi þar vorið 2000.
Byrjaði í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði haustið 2000 og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 2005. Á sumrin 2003-2005 starfaði hún í Vífilfelli, í innheimtudeild.
Haustið 2005 hóf hún BA nám í Félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og útskrifaðist hún með BA gráðu í félagsráðgjöf vorið 2010. Í BA ritgerð sinni fjallaði hún um hreyfihamlaðar konur og viðhorf þeirra til barneigna og gerði í því samhengi eigindlega rannsókn.
Haustið 2010 byrjaði hún í fötlunarfræði við Háskóla Íslands og stefnir á að klára MA gráðu í fötlunarfræði.
Aðalbjörg hefur starfað með námi sem og á sumrin síðan 2006 á leikskólanum Hvammi í Hafnarfirði.
Hefur verið leiðbeinandi/sjálfboðaliði í mörg ár í unglingastarfinu Busl sem er fyrir hreyfihamlaða unglina á aldrinum 13-18.



Fólkið í verkefninu

